Kay Finnboga - One Man - One Mission - Former world record holder - The more man

Kay Finnboga-I´m not as think as you drunk I am

22.02.2007 14:36:02 / creedforever

bloggid er farid ad treytast

eins og folk hefur sed nenni eg varla ad blogga mikid lengur ordid, er kominn med leid a tessu og svo hef eg bra annad vid tima minn ad gera tessa dagana, samt teir sem turfa ad na sambandi vid mig ta er eg haettur med islenska numerid i bili og nota bara ameriska gemsanumerid mitt sem er 001 239 249 1437.. svo getidi sent mer email eda skilabod a myspace.com/kayfinnboga.. anyways take it easy people.. Ciao..Kalli

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 00:34:43 / creedforever

Grunaði ekki gvend

Halló halló, heldur betur komið langt síðan ég hef látið í mér heyra, það er bara kominn einhver voða bloggleti í mér þannig að ég bið hina ýmsu aðdáendaklúbba síðunnar víðs vegar um heiminn afsökunar á þessu en svona er þetta stundum.. Það sem hefur aðallega gerst hjá mér er að ég er búinn að klára einkaflugmaninn sem þýðir að ég má núna fljúga vélinni sjálfur með farþega um borð og einnig er ég kominn með næturáritun sem þýðir að ég má líka fljúga á kvöldin þannig að ég er mjög sáttur með þetta og mun vera duglegur að fljúga í framtíðinni :D svo er ég líka núna að byrja á blindfluginu og verð í því alveg þangað til ég held heim á leið í jólafrí um miðjan des og verður mjög gaman að koma heim og hitta alla sem ég þekki heim, vona að fólk eigi eftir að þekkja mig þar sem ég er orðinn ansi brúnn og ekkert búinn að fara í klippingu síðan í lok ágúst þannig að lubbinn er kominn vel á veg..

en já annars er bara allt gott héðan að frétta frá naples, samt eitt og annað sem ég hef lært hérna sem er svo miklu betra en heima, þá aðallega í umferðmálum og ætla ég aðeins að stikla á því besta... í fyrsta lagi þá er leyfilegt hérna að beygja til hægri á rauðu ljósi sem er svo mikill snilldarhugmynd og sparar mikinn tíma þegar það er lítill umferð, þetta væri ekki hægt heima þar sem það væru allir að keyra inn í hliðina á bílum sem væru á akreininni..

í öðru lagi þá eru enginn helvítis hringtorg hérna heldur eru 4 átta stoppskilti sem þýðir að sá sem kemur fer fyrstur af stað og er aldrei neitt vesen með þetta, fólk hérna er yfirleitt kurteist í umferðinni en ekki svona palli var einn í heiminum eins og er oft heima á íslandi..

svo er ein alger snilld hérna sem myndi spara meðal Íslending mikinn pening í leigubílakostnað ef þetta yrði gert heima en það er að eftir 11 á kvöldin eru ljósin á litlu götunum hérna bara látinn blikka eins og þau væru biluð, þá er að úr áttunum þar sem er meiri umferð blikkar gulu sem þýðir að þeir þurfa ekkert að stoppa en úr áttunum með minni umferð blikkar rauðu sem þýðir að þeir þurfa að bíða þangað til umferðin af umferðameiri götunni er farinn.. væri ekki snilld ef þetta yrði svona á miklubrautinni seint á kvöldin og nóttunni þegar það er kannski ekki einn bíll að keyra á háaleitisbraut eða grensásveg eða eitthvað þannig.. en já verð svo að minnast á eitt annað, er voða mikið búinn að sjá auglýsingu hérna frá mcdonalds þar sem þeir eru að hvetja alla til að gefa mcdonalds gjafabréf í jólagjöf, ekki veit ég hverjum datt þetat til hugar en ég veit að aldrei á minni ævi myndi mér detta til hugar að gefa gjafabréf á mcdonalds í jólagjöf, þá get ég alveg eins sagt manneskjunni að hún sé fífl því ég efast um að það sé til ópersónulegri gjöf en það..

En já er hættur að bulla í bili, á líklega ekkert eftir að blogga þangað til ég kem heim svo hafið það gott og maður sér ykkur kannski á förnum vegi.. Tékkið líka á http://www.naples-air-center.com/index.php?view=77&p=90 og sjáið strákinn ;) Ciao..Kalli


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.10.2006 21:52:55 / creedforever

Hola senorita

Halló halló, þessar 2 síðustu vikur hafa verið ansi strembnar hjá mér svo hef ekki mikið getað bloggað og leyft ykkur að fylgjast með en allavega hef ég verið á fullu að fljúga tvisvar á dag 6 daga vikunnar og svo að auki í skólanum og prófum og svona, ég semsagt er búinn að ná fyrsta bóklega prófinu, munnlega prófinu og svo líka fyrsta verklega prófinu og svo síðasta sunnudag flaug ég vélinni einn í fyrsta skipti sem var bara mjög gaman og eftir flugið tók flugkennarinn minn sig til og klippti bakið af bolnum mínum og skrifaði upplýsingar um fyrsta sóloflugið, þetta er semsagt hefð hérna í skólanum, það voru teknar nokkrar myndir af þessu og á slóðinni http://www.naples-air-center.com/index.php?view=77&p=90  er mynd af mér eftir fyrsta sólóið, ó já gott fólk það er allt að gerast hérna, svo er ég núna að byrja að fljúga á milli staða hérna í florida sem þýðir að þetta á bara eftir að verða æ meira gaman eftir því sem líður á :) fór aftur að fljúga sólo á fimmtudag í ansi miklum vindi og sem betur fer gekk það bara ljómandi vel.. Það komu svo smá kuldaskil hérna yfir florida síðasta þriðjudag sem þýddi að hitinn hérna á morgnana fór niður í heil 10 stig sem er auðvitað ekki mönnum bjóðandi og þurftum við að klæðast buxum og peysum í fyrsta sinn í marga mánuði enda vanir að klæðast stuttbuxum og bol 24/7 ;) þetta var sem betur fer bara mjög stutt og strax á miðvikudagssíðdegi var kominn rúmlega 25 stiga hiti og svo tæp 30 það sem eftir var vikunnar sem er mjög gott bara :D ..en já annars er bara allt ljómandi gott að frétta héðan og við höfum það mjög gott hérna í Naples.. þangað til næst, njótið lífsins.. Ciao..Kalli

» 4 hafa sagt sína skoðun

13.10.2006 00:54:21 / creedforever

Nei Gummi frændi, þú hérna!

Já gott fólk, komið svoldið síðan síðast, ég lofaði víst að vera ansi duglegur að láta í mér heyra hérna í útlöndum svo verð að reyna að standa mig.. síðustu dagar hafa verið ansi strembnir, núna er skólinn byrjaður á fullu sem þýðir að ég er að fljúga tvisvar á dag, í bóklega skólanum 2 tíma á dag og að auki að reyna að læra sjálfur svo þetta tekur alveg á, allavega ekki sama afslöppunarlífið eins og var fyrst enda er það mjög fínt, maður er kominn hérna til að fljúga. Það sem ég hef lært í fluginu hingað til er að maður þarf að geta gert mjög marga hluti í einu þannig að þið sem hélduð að það væri auðvelt að fljúga þá hafið þið mjög rangt fyrir ykkur, þið þurfið oft að geta gert 5 hluti í einu svo það er nóg sem þarf að kunna og einbeitingin þarf heldur betur að vera til staðar, ég er voðalega slappur í fluginu enn sem komið er en þetta mun samt allt koma, kennaranum mínum líst allavega fínt á mig núna miðað við fyrstu tímana svo þetta er á réttri leið, ég verð vonandi sjálfur farinn að fljúga um loftin blá innan nokkura vikna, ó já! Kennarinn hefur samt verið ansi duglegur að skamma mig þegar ég geri eitthvað vitlaust en eins og hann segir þá er betra að ég hati hann og læri þá almennilega að fljúga heldur en að við verðum saman í einhverju chilli, ég læri þá voða lítið og þarf þá kannski aftur seinna að læra að fljúga... Annars er alveg ótrulega magnað landslagið hérna sem maður flýgur yfir, mun skemmtilegra að fljúga yfir hvítar strendur, fagurbláan sjó og þvílík hús heldur en að fljúga yfir íslenskt hraun :D .. en já annars er allt mjög gott að frétta héðan, við höfum verið að fara í ræktina 6 sinnum í viku með fluginu svo formið á manni er heldur betur að verða gott og á bara eftir að verða betra :p ..lífið hérna er alveg ótrulega gott, fíla Naples alveg í botn, hún hefur allt sem ég vill að borg hafi, þó ég hafi fílað mig mjög vel í Miami á sínum tíma hentar Naples mér mun betur, hún er hæfilega stór þannig að umferðin er ekkert voðaleg, hún hefur magnaðar strendur og svo er veðrið hérna yfirleitt alltaf mjög gott, eins og staðan er núna sakna ég Íslands ekkert voðalega mikið, eina sem ég sakna ansi mikið að heiman er Steinunn mín, svo familían og vinirnir/vinkonur en ég kíki nú í heimsókn heim um jólin svo þið fáið að sjá smettið á mér þá :D.. Hafið það gott í bili..Ciao..Kalli


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.10.2006 23:10:53 / creedforever

Akkúrat ekki eða það sem var þar

Heil og sæl, ætla rétt að láta í mér heyra hérna, eins og þið sjáið er ég að prófa nýtt lúkk á síðuna, er búinn að vera með sama útlitið síðan ég byrjaði að blogga svo fínt að fá smá breytingar og sjá hvernig þær koma út.. en allavega ekkert voða mikið að frétta og ég hef ekkert voðalega mikið að segja en allavega byrjuðum við í skólanum í dag og fengum okkur loksins ameríska gemsa í gær, gemsanúmerið mitt er +1 239 249 1437 ef þið þurfið að hafa samband við mig, ég verð með íslenskan gemsan minn heima á daginn svo ekki fá áfall þó ég svari ykkur ekki alveg strax og þið sendið, er líka búið að vera ansi mikið sambandsvesen í íbúðinni okkar með íslensku símana, höfum þurft að standa alveg upp við gluggann inn í herbergi til að geta fengið samband á símann en já það lagast núna þegar við erum komnir með amerísk númer.. Þangað til næst, take it easy..Ciao..Kalli

» 8 hafa sagt sína skoðun

30.09.2006 18:30:05 / creedforever

Neipols baby, neipols..

Heyriði já þá er kominn tími á að láta aðeins meira heyra frá mér hérna frá Florida eða réttara sagt Naples(borið fram Neipols :p), eitt og annað hefur drifið á mína daga síðan síðast, við erum búnir að koma okkur ansi vel fyrir í íbúðinni okkar hérna, búnir að kaupa inn rúm, eitthvað af húsgögnum og svo alla smáhluti og núna bíðum við bara spenntir eftir að skólinn hefjist, áttum að byrja örlítið fyrr en það gekk ekki eftir svo við byrjum bara á þeim tíma sem skólinn átti að byrja, semsagt í lok næstu viku. Fyrsta eina og hálfa vikan flaug áfram þar sem við þurftum að gera ansi margt til að komast inn í lífið hérna en svo þegar það er búið höfum við haft aðeins meiri tíma til að komast í svipaða rútínu og heima á Íslandi, höfum farið að lyfta á hverjum degi alla þessa viku í gyminu sem við fundum hérna og svo erum við búnir að vera ansi duglegir að hanga í sólinni og hvað haldiði ef maður er ekki aðeins farinn að bæta á sig smá tani enda ég búinn að vera nokkuð yfirlýsingaglaður um að ég kæmi heim um jólin ansi vel tanaður ;)

..skólinn byrjar svo loks í lok næstu viku og þá hefst alvaran, þá verður fátt annað sem kemst að en að fljúga og læra og svo verður ræktin hluti af daglegu rútínunni. Bílamálin eru kominn í frábært lag, alveg síðan ég var lítill hefur mig langað í ford mustang blæjubíll og hérna náði ég loks að láta þann draum rætast, og þið sem hugsið vá hvað hann hefur eytt í þetta, þá eru bílar hérna það ódýrir að bílinn sem ég keypti, sem er 2001 módel í frábæru standi með öllum búnaði, hann kostar svipað mikið og það kostar að kaupa 2002 yaris á íslandi, ódýrustu týpuna, bílar hérna eru semsagt mikið ódýrari en heima. Samt er svo fyndið að eiga við bílasölur hérnam þegar ég fór og keypti mustanginn þá kom sölumaðurinn með á rúntinn enda tíðkast það alltaf hérna, svo fóru fram samningaviðræður um verðið og þar kom þrjóskan í mér sér vel þar sem ég og maggi vorum ekkert á því að gefa okkur, þeir komu fyrst með verð sem var út úr korti en við náðum að lokum að lækka það umtalsvert og er ég mjög sáttur með bílinn:) svo er annað sem er fyndið við bílasölur hérna að það er ekki hægt að fara bara og skoða bíla heldur er alltaf engin smá pressa frá bílasölunum að kaupa bílinn og inn í það spilar leikþáttur þegar maður situr með einum bílasala og svo kemur annar og segir með leik sem er verri en leikurinn í leiðarljós að það sé verið að hringja útaf sama bíl eða það sé einhver sem vilji skoða hann, þetta er að sjalfsögðu gert til að reyna að fá fólk til að kaupa strax, en mér finnst þetta bara svo hallærislegt að þetta virkar ekki neitt á mig, það er allavega margt hérna sem er svo allt öðruvísi að maður þarf að venjast því og gott að maður er nokkuð vanur þessu og ansi þrjóskur maður sem gerir hlutina sjaldan í flýti.....

erum ekki enn komnir með ameríska gemsa þar sem við höfum lent í talsverðu veseni með að fá svoleis, eða réttara sagt það hefur gengið erfiðlega að fá þannig áskrift að það kosti ekki hundruðir króna að hringja heim til íslands, heimasíminn er samt kominn hjá okkur og hringiði í +1 239 732 5701 ef þið viljið tala við okkur, svo er ég ennþá með íslenska gemsann minn svo þið getið sent mér sms í hann og svo eruð þið með emailið mitt þannig að það á ekkert að vera neitt vandamál að ná sambandi við mig :p ..Bið að heilsa að sinni, hafið það gott hvar sem þið eruð stödd..Ciao..Kalli


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.09.2006 23:27:24 / creedforever

Fyrsta bloggið frá Naples

Fyrsta bloggið frá annari heimsálfu, núna er ég staddur upp á hótelherbergi í Naples, Florida, hitastigið hérna hefur ekkert verið neitt alslæmt, hitinn í dag fór mest upp í 35 stiga hita þannig að svitinn lak niður bakið eins og á kúbverskum fisksala.. Ef þið eruð að reyna að ímynda ykkur hvernig það er að vera hérna þá getið þið reynt að hugsa hvernig það er að hafa ca 70 sjónvarpsrásir, ganga í stuttbuxum allan sólarhringinn, borga 45 krónur fyrir líter af bensíni, tæpar 400 kr fyrir stóran subway og um 70 kall fyrir 0,6 lítra af kók(já þetta var ekki stafsetningarvilla, flöskurnar eru 0.6 lítrar), þannig að eins og þið sjáið er það ekki svo slæmt að vera hérna, ansi ljúft ef eitthvað er ..við kíktum upp í skóla í fyrsta sinn í dag og heyrðum í allavega 10 íslendingum þarna þannig að það er allt flæðandi í þeim, skólinn hjá okkur byrjar á þriðjudag, semsagt mun fyrr en áætlað var og til að byrja með verðum við í skólanum í um 10 tíma á dag þannig að þetta verður strembið strax frá upphafi en bara gaman að því :D .. annars fór ég áðan að reynsluaka mustang blæjubíll sem var alger snilld en mér leið eins og í amerískri bíómynd, því þetta var svo týpískur bíómyndasölumaður, ætlaði ekki að hleypa okkur út þangað til hann næði að selja okkur bílinn, lækkaði fyrst verðið umtalvert, svo sá hann að við ætluðum ekki að kaupa strax þannig að hann fór að reyna að “telja” yfirmanninum trú um að lækka hann enn meira, það gekk ekki heldur svo hann fór og kynnti okkur fyrir yfirmanninum sem bauð okkur enn lægra verð en samt vorum við ekkert á því að kaupa okkur bíl strax þannig að við sögðumst hugsa málið og kvöddum, þeir eru örugglega ennþá að velta fyrir sér hvernig þetta gekk ekki að selja einhverjum heimskum útlendingum bíl en við þekkjum nú ameríku of vel til að verða plataðir á einhverju svona, annars er helsti munurinn líka á íslandi og ameríku að hérna labbaru inn á bílasölu og eftir 10 sekúndur er sölumaður mættur að reyna að sýna þér en heima þarftu liggur við að hoppa á sölumann til að fá einhverja aðstoð.. og í búðum heima þá ferðu á kassann, borgar og raðar svo í poka en hérna borgar þú bara á meðan það er maður sem raðar í poka fyrir þig og setur í grindina sem auðvitað sparar mikin tíma bæði fyrir þig og einnig gengur röðin mun hraðar fyrir sig, það er meira segja hérna hægt að afgreiða sig sjálfur, þá renniru bara hlutunum í gegnum bípið og borgar svo, þetta væri ekki hægt heima þar sem það myndi aldrei neinn borga fyrir neitt, sé alveg fyrir mér í lok dags að verlsunarstjórinn er að segja við starfsfólkið, ha er engin sala í dag, en hillurnar eru tómar! . en já ég kveð ykkur að sinni úr hitanum, hafið það gott. Fyrstu myndirnar eru komnar á http://www.pbase.com/kaynaples  .. Ciao..Kalli


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.09.2006 13:58:27 / creedforever

Dagur hitnandi fer er kuldinn tekur völdin

Þá er komið að þeim degi sem ég hef vitað af í marga mánuði, á morgun legg ég land undir fót og held til bandaríkjanna, nánar tiltekið florida þar sem ég mun fara í skóla og mun ég vera í burtu í rúmt ár þó ég muni nú koma heim í jólafríum og þess háttar.. Þetta eru að sjalfsögðu miklar breytingar í mínu lífi en ég tel að þetta séu bara jákvæðar breytingar og mikið tækifæri fyrir mig, þó það sé vissulega erfitt að þurfa að selja íbúðina mína, selja bílinn minn, kveðja familíuna, kærustuna og vinina þá er þetta einfaldlega of stórt tækifæri og ævintýri til að hafna því, það eru ekki allir sem fá svona tækifæri svo það er um að gera að nýta það, svo hef ég líka það mikla reynslu af að vera í florida að ég veit að ég á eftir að hafa það mjög gott þar. Ég mun reyna að blogga af og til bæði hér og á www.myspace.com/kayfinnboga og svo ætla ég að vera duglegur að setja inn myndir frá mér og mínu daglega lífi úti, ætla að stofna nýja myndasíðu þegar ég kem út, vitið þið samt um góða myndasíðu þar sem tekur fljótan tíma að setja inn myndir, aðal ástæðan að ég hef oft verið latur að setja inn myndir er útaf það er bara hægt að loada einni inn í einu og ég hef ekki þolinmæði í það.. En ég kveð ykkur öll að sinni og vona að þið hafið það gott á Íslandinu þann tíma sem ég verð úti, einhver af ykkur munu líklega kíkja út í heimsókn en þið hin hafið það vonandi gott og ég sé ykkur svo fersk þegar ég mæti aftur heim á klakann brúnn og góður. Mun láta ykkur vita með símanúmer og adressu og þess háttar úti og svo getið þið hitt á mig á msn, emailið mitt er kallifinnboga@hotmail.com ef þið eruð ekki með það.. Take it easy..Ciao..Kalli 


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 11:31:53 / creedforever

Bandið rifnaði af tölvunni við skeiðina

Jájájá heldur betur langt síðan síðast gott fólk, ég er ennþá á lífi ef þið hafið velt þessu fyrir ykkur, bara verið einhver voðaleg bloggleti í mér að undanförnu en núna allavega er kominn tími á að meistarinn láti aðeins í sér heyra.. Eyjar voru nú auðvitað snilld að venju, þið sem voruð þar vitið hvað gerðist og hvað var gaman, þið sem misstuð af þessu, ég nenni ekkert að vera að núa ykkur um nasirnar með því að segja ykkur allar þær fjölmörgu sögur sem gerðust þar en allavega var mjög mikil drykkja og magnað stuð, hef ekki ennþá nennt að henda inn myndum og mun ekki nenna því strax, kannski að þjóðhátíðarmyndir munu koma inn fyrir jólin :p .. en að öðru, núna eru ekki nema 3 vikur þangað til undirritaður leggur af stað í ævintýra og lærdómsferðina til florida þar sem ég mun leggjast yfir skólabækur ásamt bróður mínum, það er búið að panta flug, bíl, hótel og allan pakkann og búið að fá vegabréfsáritun og ganga frá öllu sem fylgir námi í ameríku, ég seldi svo íbúðina mína í gær sem þýðir að blikahólarnir vera bráðum ekki lengur mitt heimili, svo er ég að fara að selja bílinn minn á næstu dögum þannig að það eru miklar breytingar í mínu lífi á næstu grösum en ég lít bara á þetta sem jákvæðar breytingar.. en ég nenni ekkert að segja meira í bili, þið verðið bara að hafa samband við mig ef þið viljið vita eitthvað meir, ætla nú ekki að flagga öllu hérna í netheimum.. Eigið góðar stundir..Ciao..Kalli


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.07.2006 21:46:42 / creedforever

Glens og gaman allir saman sagði daman

Já gott fólk, nú eru ekki nema 8 dagar í þjóðhátíð og núna í fyrsta skipti er ég að komast í þjóðhátíðarfíling, kominn ansi mikill tilhlökkun í mig og vó þetta á eftir að verða svo ótrulega gaman, þekki óvenju mikið af fólki sem er að fara í ár, yfirleitt hefur þetta verið þannig að maður rekst bara á liðið þarna en í ár veit ég allavega að eru að fara: ég sjálfur, jón þór, elli, doddi og co, maggi bro og co, steinunn og heiðrún, ragna, lára og co, lóa einkó og co, ehh já eru fleiri, bara man það ekki í augnablikinu :D ..ætla að koma með lista yfir hvað er must í eyjum, ef þið takið ekki alla þessa hluti með getið þið alveg eins sleppt þessu: Fyrst er það áfengi, það er alveg það lífsnauðsynlegasta þarna, meira að segja má segja að það sé mikilvægari en svefnpoki og tjald, ok kannski það eina sem er mikilvægara en áfengi eru föt, ekki mjög sniðugt að mæta á typpinu með áfengi tilbúinn í stuðið, það verður örugglega kalt.. en semsagt

Áfengi

Tjald

Svefnpoki

Matur

Miða á svæðið

Flugmiða eða miða í Herjólf, nokk mikilvægt :p

Saltstangir í gámavís(kommon maður drekkur ekki bjór án þess)

Stígvél

Regngalla

Ullarsokka

Hanska

Húfu

Föt til skiptanna

Sundföt

Upptakara

Tannbursta og tannkrem

Rakspíra og svitalyktareyði

Regnhlíf

Tjaldstól

Batterí

Plastglös fyrir bland

Brúsa fyrir bland

Bland fyrir bland

Nammi

Myndavél

Svo er það fun stuffið:

Steikt sólgleraugu

Frekar fyndinn hatt

Tónlist og græjur

Uppblásin leikfangadýr

Uppblásna sundlaug

Sniðuga peysu eða bol með áletrun

Einhvers konar vesti

Ennþá meira áfengi

Grímu

Sundbolta

Gítar og texta

Svo bara allt sem passar við eyjar, munið það er ekkert of ruglað eða of heimskulegt.. er annars að spá að taka flippið á þetta eins og vanalega svo það er spurning hvort þið séuð með einhverjar áskoranir sem eru samt ekki alltor mikið út úr kú, ég ætla ekki að velta niður brekkunna allur í eld eða eitthvað í þeim dúr ;) ..mun bæta við ef ég er að gleyma einhverju, allir á þjóðhátíð! Ciao..Kalli


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.07.2006 12:19:12 / creedforever

Erum við að tala saman eða er ég að rugla..

Maður orðið nennir ekki að blogga eins oft og maður gerði áður, skil ekki ástæðu þessarar bloggleti en svona er þetta bara stundum.. En já það sem hefur á daga mína drifið að undanförnu er nú fyrst að folinn ykkar er orðinn útskrifaður einkaþjálfari og má sem slíkur vinna sem einkaþjálfari víðs vegar um heiminn og er fólk strax farið að fá ráðleggingar frá mér varðandi mataræði og annað. Útskriftin var á síðasta laugardag á hádegi og þar sem ég á ekkert alltaf auðvelt með að vakna á morgnana var ég á síðustu stundu með að mæta á réttum tíma í mína eigin útskrift, það hafðist samt. Skólastjórinn í skólanum hringdi í mig á mánudeginum til að segja mér að ég hefði náð og þar tók hann fram að allir ættu að mæta í sínu fínasta pússi, að sjalfsögðu gerði ég það, fór í jakkafötin, setti á mig bindi og vax í hárið og svona, svo mæti ég niðrí Laugar þá eru flestir strákarnir klæddir í stuttermaboli og gallabuxur, ég og skólastjórinn í skólanum vorum einu mennirnir sem vorum í jakkafötum þó að nokkrar stelpur hafi verið uppábúnar líka :D ..en ég hafði bara gaman af því..

 

Einkaþjálfaraskólaliðið tók annars fyrsta djammið sitt saman helgina þar á undan, strax eftir lokaprófið sem var by the way 4 tíma langt og 35 blaðsíður, við fórum í baðstofuna og svo var partý heima hjá mér og tókst það kvöld mjög vel þar sem fólk var orðið vel hresst og nokkrir aðilar komnir á trúnó víðs vegar um íbúðina, ég náði samt að forðast það stig drykkjunar að fara á trúnó við alla.

 

 



Síðasta helgi var svo tekinn í að bruna til Ólafsvíkur af öllum stöðum þar sem færeysku dagarnir stóðu yfir og keyrði ég einn í bíl þar sem allir sem ég þekkti voru löngu mættir

á svæðið og var mikið stuð þetta kvöld, hitti alveg tonn af fólki sem ég þekkti og tók gott djamm með Ásgeiri einkaþjálfara og Guðrúnu auk annara skemmtilega aðila sem bættust í hópinn, hins vegar er hérna smá sem ég lærði í þessari ferð, að spila fótbolta blindfullur er svoldið spes, maður tekur smá sprett og líður eftir það eins og 300 kílóa manni sem hefur ekki hreyft sig í 14 ár, alveg lafmóður.. Annars svaf ég svo í aftursætinu á Lexusnum og svaf ég óvenju vel miðað við að þurfa að sofa samankrumpaður :p

 

 



Mínir tölvusérfræðingar sem ég er með í vinnu 24/7 hafa að undanförnu ráðlagt mér að koma með einhverja aðra sniðuga síðu þegar ég fer út þannig að fólk eigi auðveldara með að fylgjast með mér og geti kommentað á skemmtilegri hátt en þetta og svona eitthvað og velti ég vöngum yfir þessu og svo að lokum ákvað að fara að þeirra ráðum og byrja með síðu eins og 90 milljón aðrir eru með, ég er búinn að opna mína eigin myspace síðu, hafði aldrei kynnt mér það áður en stofnaði svoleis í fyrradag og mun ætla að vera duglegur að setja inn myndir úti auk þess sem ég reyni að skrifa af og til hvað á mína daga drífur úti sólinni. þessi síða sem þið eruð á mun samt ennþá verða til staðar ef þið voruð orðinn hrædd;).. en allavega þá er síðan www.myspace.com/kayfinnboga ef ykkur langar að tékka á þessu..

 

 



Eigið góðar stundir gott fólk, þjóðhátíð nálgast..Ciao..Kalli 


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.06.2006 16:34:18 / creedforever

Datt hesturinn niður rúllustigann með varalit

Sæl verið þið öllsömul og takk fyrir síðast, það er komið langt síðan ég hef nennt að tjá mig, sumrin eru þannig að maður nennir ekki eins mikið að blogga, hef ekki lent í neinu blogg skapi lengi lengi enda hættur að vakna klukkan 5 á morgnana svo ekki fer heilinn á overload svona snemma dags, gerði ansi mikið af því að vakna svona uppúr 1 á daginn á tímabili en það er allt búið að lagast og maður farinn að vakna á mannlegum tímum aftur, var farinn að halda á tímabili að ég væri vampíra þar sem ég vakti alltaf langt fram eftir nóttu og vaknaði um miðjan dag en þá fattaði ég að ég var ekkert að bíta fólk og drekka blóðið úr því svo ekki gat ég verið vampíra, úpsí, smávægileg mistök..

 

 



En já það er svona helst í gangi hjá mér að ég er búinn að vera að þjálfa kúnnann minn undanfarnar 3 vikur í verklega hlutanum af einkaþjálfunarskólanum og sá stórkostlegi árangur hefur náðst að hann er búinn að bæta á sig 0,5% af fitu á þessum 3 vikum, reyndar hefur allt gengið vel hjá okkur og hann er búinn að bæta sig í lyftingunum og farinn að gera allar æfingar rétt en þarna sést best að ef mataræðið er alls ekki í lagi og maður æfir ekki sjálfur þá daga sem þjálfarinn er ekki þá næst engin árangur, ég er búinn að gera mjög gott mót með hann en það vantar smá uppá metnaðinn í kúnnanum, það kemur vonandi með tíð og tíma og þá fer þetta að skila sér, mataræði er alveg 60-70% af þessu!

 

 



Svo er eyjar 2006 að nálgast og er tríóið, a.k.a. fimman þar sem það eru tveir aukagestir, búnir að panta allt, förum með flugi á fimmtudeginum og með flugi heim á mánudegi, svo ákvaðu þrír af hópnum að panta sér bara gistingu á gistiheimili þessar nætur og gista bara í hlýjum rúmum frekar en að liggja á kaldri jörð, í mitt fyrsta skipti í eyjum í hittífyrra rigndi inn í tjaldið mitt þannig að ég vaknai skjálfandi einn morguninn og svo í fyrra var gat á vindsænginni svo ég þurfti að sofa á grjótharðri jörðinni allavega eina nótt og var bakið á mér með mótmælagöngu núna eftir áramót til að mótmæla þeirri meðferð aftur svo ég hélt fund með sjálfum mér og ákvað að redda bara gistingu, auk þess er það ekki beint skemmtilegasti hlutur í heimi að pakka saman tjaldi og dóti í þannig ástandi að maður veit varla hvað maður heitir...

 

 



Annars var minns að drekka í fyrsta sinn í 5 vikur síðasta laugardag og fyrsta alvöru djammið í bænum í einhverja 3 mánuði og má segja að folinn hafi komið sterkur inn af kantinum og var í stuði alveg til 6 um morguninn og skemmti sér konunglega, ég og Elli-nn vorum í góðum gír þangað til ég “týndi” honum..

 

 



Svo er heldur betur farið að styttast í utanlandsför mína, held að flestir sem mig þekkja vel vita að ég mun hverfa á braut í haust og leggja land undir fót og flytjast til florida þar sem ég er á leið í nám og mun það verða viðburðaríkt og ótrulegt ævintýri að vera þar fram til 2008, já Ísland verður Kallalaust í allan þennan tíma, spurning hvort fólk eigi eftir að meika þetta eða hvort það flytjist allt landið til Florida einnig.. Annars má fólk endilega kíkjí heimsókn til mín ef það vill koma í hitann til Florida, hins vegar má ekkert hver sem er kíkja heldur bara fólk sem ég þekki vel og vill umgangast næstu árin, þannig að þið sem eruð talinn upp hérna getið kíkt í heimsókn ef þið viljið ;) :
Jón, Jóel, Elli, Viggó, Sandra, Fanney, Ragna, Thelma, Tinna, Guðrún, Marit, Lára, Linda, Ásgeir, Finnbogi, Jóhanna, Jóhann, Erla, Sigrún, Birna, Guðríður, Hulda, Unnur, Hrönn, Siggi, Sunna, ehmm já getur verið að ég sé að gleyma einhverjum þannig að don´t kill me ef svo er :p

 

 



Jæja ætla að halda áfram að horfa á Hm, er búinn að horfa á nánast alla leikina nema kannski Túnis-Sádí Arabía sem vakti ekki mikla athygli hjá mér..Vonandi að mínir menn í Argentínu taki þetta, hef verið heillaður af þeim síðan Juan Veron var upp á sitt besta..Já svo er NBA á fullu þessa dagana og þar eru mínir menn í Miami Heat alveg að standa sig eftir byrjun þar sem ég gekk um með hauspoka en svo komu þeir sterkir inn og vonandi að þeir vinna sinn fyrsta meistaratitill, ég hef nú farið á 4 leiki í höllinni hjá þeim svo það er alltaf gaman að horfa á leiki úr AAA höllinni... en já Gleðilegan þjóðhátíðardag, kannski að ég kíki eitthvað út í kvöld, það kemur allt saman í ljós, anyways..Ciao..Kalli


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.05.2006 16:19:52 / creedforever

Efinn dregur langan dilk á eftir gemsanum..

Ég fór í bíó á DaVinci code í fyrradag sem er alger snilldarmynd og mæli ég með henni, skil ekki hvað fólk hefur verið að rugla að undanförnu í sumum furðulegum löndum með að það megi ekki sýna hana því að þetta gagnrýnir kenningar biblíunnar og eitthvað blabla, hvað með það, fólk trúir bara því sem það vill trúa og á bara að lifa í afneitun með að þessi bók eða mynd sé til vegna þess að þetta er eitthvað öðruvísi, jæja svona verða bara sumir ruglukollar að vera, held að efinn sé nauðsynlegur í öllu..

 

En já þetta er annars ekki ástæða þess að ég ákvað að blogga heldur þykir mér það ansi hreint magnað að á leið heim rakst ég á auglýsingu sem á stóð nýji DaVinci síminn, ehmmm ekki skal ég segja hvort ég hafi verið svona sofandi í sögutímum en allavega man ég aldrei eftir því að hafa heyrt að Leonardo DaVinci hafi gengið um með gemsa á sér og er ég nokkuð viss um að það er eitthvað sem ég hefði tekið eftir og þótt frekar einkennilegt þar sem símatæknin var ekki að mér vitandi kominn á árunum 1452-1519.. held að ég þurfi að kynna mér þetta mál aðeins nánar, greinilega mjög margt sem ég hef misst af þegar ég var sofandi í skólanum enda mín framhaldsskólaár einkenndust mikið af svefni og að horfa út í loftið.. spurning hvort ég hafi líka misst af Kristófer Kólumbus plasmasjónvarpinu enda alveg nauðsynlegt að hafa eitt svoleiðis um borð þegar verið var að sigla til Ameríku í ferð sem tók mánuðum saman, þá var nú nauðsynlegt að geta skellt á night at the roxbury.. og líka Leif Eiríksson digital myndavélin sem hann var alltaf með á sér og tók að sjalfsögðu myndir á þegar hann fann Íslandið góða, þá var nú nauðsynlegt að geta sett myndirnar á netið sem var að sjalfsögðu komið árið 974.... nei kannski að þetta sé bara rugl og þessi tækni hafi engann veginn verið komið á þessum tíma, hver veit??

 

..annars finnst mér fyrirbærið útsölur alveg magnað, ótrulegt hvað fólk getur gersamlega umturnað öllu sem það þekkir þegar von er á útsölu, ég var að keyra í skeifunni í dag og þar var útsala í einni fatabúð og þarna voru hóparnir af fólkinu að missa sig, held að það hafi verið rútuferðir þangað því örtröðin sem var þarna var rosaleg, held að fólkinu vanti nú ekkert fötin en sú staðreynd að hægt sé að spara smá pening gerir það að verkum að fólk kaupir 10 buxur og 13 peysur í einni ferð og gleymir öllu öðru í sínu lífi á meðan, “ já er konan mín á spítala að fara að fæða, ehh það skiptir ekki máli, ég er á útsölu! “.. ekki það að ég sé neitt betri en samt gaman að þessu :D .. eigið góðan kosningardag gott fólk.. og já þið sem hafið lesið bloggið mitt í gegnum tíðina en saknið gamalla blogga þá getið þið skoðað gömul blogg með því að gera þessa slóð en breyta bara alltaf tölustafnum aftast, í 3, 4 og so one, fer eftir því hvað þið viljið lesa gömul blogg ... http://www.blog.central.is/creedforever?page=news&index=2 ...Ciao..Kalli



 



 


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 22:50:18 / creedforever

Haltu í hendina á rennibrautinni..

Langt síðan síðast, hef verið í smá blogg leti en hér er ég mættur á nú og eitt og annað á mína daga drifið, nú er ég hættur í klassanum og hef verið í smá fríi síðustu daga sem hefur verið mjög fínt bara, hef gert talsvert af því að sofa og verið mjög duglegur að mæta í ræktina og fara út að skokka og svona..

 

 



En svona til að byrja með vill ég óska mínum kæra vini til hamingju með að vera búinn að trúlofa sig, já þið heyrðuð það rétt, sá ótrulegi hlutur hefur gerst að einn af tríóinu er búinn að trúlofa sig, það hefði engin trúað að þessi dagur ætti eftir að gerast en hann er kominn, Jóel er búinn að trúlofa sig og fór tríóið á smá flipp í bænum á laugardaginn í tilefni þess, congrats buddy J

 

 



Annars er ég loks kominn með fyrsta flokks læknisvottorð fyrir flugið sem þýðir að ég hef heilsu til að fljúga öllum vélum sem betur fer, ég er eðlilegur að öllu leyti heilsulega séð, eða já svona eins mikið og hægt er, fólk veit alveg að ég er ekkert eðlilegur ;) ..annars var þetta frekar skrítið að vera þarna því að ég þurfti að pissa í glas og hef ég ekki gert það áður og skal það viðurkennt að typpið á mér var ansi tregt til, hann var bara “abbabbabb hvað er þetta hvíta sem er hérna undir mér, ég ætla ekkert að sleppa neinu út þegar þetta er fyrir” en ég náði að tala hann til og hann lét loks gossa..

 

 



Og já svo er minns bara kominn í drykkjubindindi, hef þróað með mér aðferð sem gerir það að verkum að ég get bæði keyrt heim af djamminu og sloppið við allar leigubílaraðir og einnig svalað áfengisþörf líkamans, eftir 30 ár verður þetta kallað að taka Kalla-nn á þetta, hérna er samtal milli tveggja vina:

 

 



Snorri: Er það fyllerí í kvöld?

Pétur: Njah er að hugsa um að taka Kalla-nn á þetta

Snorri: Hei já, góð hugmynd, gerum það frekar

 

 



..Þessi hugmynd byggist á að drekka bara 2 léttöl og svo orkudrykki, þá er hægt að vera með í partýum og fá sér að drekka og vera með í stemningunni og svo getur maður keyrt í bæinn og aftur heim..

 

 



Jæja nóg í bili, see ya later..Ciao..Kalli


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 06:33:27 / creedforever

Kexið datt af kindinni í vörubílnum..

Að ég skuli vera vakandi þykir mér magnað mál, er svo að deyja úr þreytu hérna að er búinn að líma augnlokin á mér við ennið á mér og get sagt ykkur að sú sjón er rosaleg.. annars er ég búinn að átta mig á því að ég er ekki hannaður fyrir það að vakna snemma, í gerð Kallans varð ákveðinn framleiðslugalli sem gerir það að verkum að ég á alveg einstaklega erfitt með að vakna á morgnana og er líka alveg einstaklega lengi í gang, fólk sem hefur talað við mig eldsnemma að morgni hefur lent á því að það er eins og að spjalla við zombie að tala við mig eldsnemma og nývaknaðan og held ég að þessi framleiðslugalli muni fylgja mér alla ævi, sé mig ekki alveg vakna eldferskan klukkan 5 eða 7 að morgni, talið frekar við mig eftir hádegi, þá fyrst er ég orðinn hress..

Annars er sorgardagur á morgunn, þá mun strákurinn sjálfur hætta störfum hjá World Class eftir að hafa unnið þar síðan í haust og munu fánar vera dregnir að húni á morgun og forsetinn mun mæta og flytja ræðu að gefnu tilefni.. Mun þetta nú vera nokk leiðinlegt enda maður búinn að kynnast fullt af frábæru fólki þarna en ég er nú ekkert alfarinn, mun halda áfram að æfa þarna af krafti og svo hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér, er nú í einkaþjálfarskólanum eins og er og kannski að maður vilji spreyta sig á þjálfun í framtíðinni og þá er nú klassinn betri en hver annar staður..

Haldiði svo ekki bara að maður sé orðinn svaðalegur skokkari, við strákarnir höfum stofnað skokkklúbbinn Hasselhoff svo ekki láta ykkur bregða ef þið sjáið okkur skokka um götur bæjarins, stefnan er sett á að reyna að skokka 3-4 sinnum í viku og aldrei að vita nema við skráum okkur í eitt og eitt hlaup í sumar, yes indeed I have lost it, samt nota bene þá skokka ég ekki eldsnemma á morgnana heldur á alvöru tímum, semsagt á kvöldin þegar ég er loks vaknaður..

En jájá er að missa mig hérna, held ég sé farinn að tala við vegginn, langt síðan ég hef verið svona þreyttur, en allavega þá eru menn búnir að panta sér ferð til eyja á þjóðhátíð þar sem við verðum eldhressir 3 árið í röð :D ..og já þessi myndamál öllsömul, hef ekki haft tíma til að gera þetta en ég lofa að um helgina mun ég loks láta verða af því að setja inn árshátíðarmyndir og myndir úr sumarbústað sem var um daginn.. Ég kveð ykkur að sinni, eigið góðar stundir í dag..Ciao..Kalli 


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14